Nútímalegt viðhald á sögufrægum stað Widooie kastalagarðurinn

Í hæðum og hólum Tongeren í Belgíu er að finna Widooie kastalagarðinn sem er gersemi með sögulegan arf sem teygir sig aftur til 9. aldar. Aðilinn sem ber ábyrgð á þessu landflæmi veit hversu mikilvægt það er að nýta sér gagnlegar, skilvirkar, nýstárlegar og áreiðanlegar vélar við verkefnið. Hverjir eru hans traustustu bandamenn? Þrjár Avant ámokstursvélar sem aðstoða hann við reglubundið viðhald og umsjón með óðalsjörðinni.

Widooie landareignin sameinar sögulegan arf og skýra framtíðarsýn. Eigandi kastalans, riddarinn og umsjónaraðili óðalsjarðarinnar, hann  Norbert de Schaetzen van Brienen erfði ástríðu fyrir landbúnaði og náttúruvernd frá afa sínum. Í gegnum árin hefur hann breytt landareigninni úr opnu graslendi í vistvænan skrúðgarð með vandlega gróðursettum trjám, stígum og limgerðum.

Þessi skrúðgarður stuðlar ekki aðeins að því að varðveita líffræðilegan fjölbreytileika heldur þjónar einnig sem lipurt varnarúrræði gegn hugsanlegum ágangi á náttúrusvæðin. Meiriháttar viðhaldsverkefni af þessu tagi krefjast hugvitsamlegrar beitingar á vélbúnaði og þar koma Avant tæknilausnir til sögunnar. Norbert notar liðskiptu ámokstursvélarnar í ýmis verkefni: allt frá því að slá blettinn og snyrta limgerði yfir í að flytja trjádrumba og lyfta þungu hlassi.

Norbert er ekki ókunnugur heimi landbúnaðar- og viðhaldsvéla. Hann hafði áður flutt inn John Deere vélar og þróað landbúnaðarvélar þannig að hann er með glöggt auga fyrir skilvirkum og áreiðanlegum tæknilausnum. Í leit sinni að skilvirkri og fjölnota vél fyrir landareignina leitaði hann fljótt til Avant.

Krefjandi vinna krefst fyrsta flokks vélbúnaðar

Norbert hefur hvern dag á því að yfirfara landareignina og sjá hvaða viðhaldsverkefni séu á döfinni. Vélarnar eru ómissandi hluti af daglegum verkefnum á lóðinni.

„Vélarnar eru í gangi hérna allan daginn, frá morgni til kvölds,“ segir Norbert. „Það hjálpar okkur að uppfylla viðhaldsþarfir landareignarinnar vegna þess að hægt er að sameina Avant vélar við annan vélbúnað, eins og kranann okkar og Unimog.

Norbert vill að vélar hans séu ekki aðeins skilvirkar heldur einnig hagkvæmar og sjálfbærar. Þökk sé vökvadrifinu í Avant getur hann aðlagað hraða og afl nákvæmlega að hverju verki án óþarfa eldsneytisnotkunar. Þannig eru vélarnar sparneytnari en henta einnig vel til langtímanotkunar og álagsfrekra verkefna. Að auki þarf að taka tillit til viðhaldsþarfa.

„Á þriggja ára fresti fáum við nýja Avant vél, aðallega vegna virðisrýrnunar en einnig vegna þess að tæknin er stöðugt að þróast,“ útskýrir Norbert. „Nýjustu gerðirnar eru alltaf aðeins betri og skilvirkari en fyrri kynslóðir véla.“

Maður með markmið

Norbert de Schaetzen van Brienen er hugsjónamaður. Auk þess að sinna viðhaldi landareignarinnar þá þarf hann að taka mið af framtíðarmynd í viðhaldi og umsjón landareignarinnar og hvernig rétt beiting vélbúnaðar getur spilað inn í það. Áður fyrr þróaði hann jafnvel vélarnar sjálfur og er enn að vinna að nýjum hugmyndum.

Það er engin tilviljun að hann ákvað að starfa með Avant: það var hnitmiðuðu ákvörðun að velja vél sem fléttar saman nýsköpun og áreiðanleika. Reynsla hans af landbúnaðarvélum staðfesti þá ákvörðun og hann er enn sannfærður um að Avant sé besta lausnin fyrir landareignina.

„Skrokkurinn býður ekki lengur upp á erfiðisvinnu,“ segir Norbert og brosir út í annað. „En þökk sé þessum vélum get ég áfram sinnt landareigninni eftir eigin höfði. Þetta heldur manni ungum.“

GÆÐI OG HAGKVÆMI | Kastalaeigandinn Norbert de Schaetzen van Brienen nálgast verkefni á verkfræðilegan hátt og gerir þá kröfu að vélabúnaður  sé skilvirkur, áreiðanlegur, sjálfbær og lipur í viðhaldi.

Avant í hverju verki

Með árunum hefur fjölgað í flota Avant tækja á óðalssetrinu. Norbert de Schaetzen van Brienen vinnur nú með þrjár gerðir: 635, 760i og 855i, sem er nýjasta rósin í hnappagatið.

Þrír helstu kostir þess að nota Avant í Widooie kastalagarðinum

Fullbúið vökvadrif – Ólíkt mörgum samkeppnisaðilum sem eru enn að nota öxla og beinskipta gírkassa, eru Avant vélarnar með fjóra aðskilda vökvamótora. Þetta skilar mun betra veggripi, einnig á ójöfnu undirlagi.

Föst liðskipt stýring – Liðskiptingin á Avant vélunum er föst, sem þýðir að ámokstursvélin er stöðugri í beygjum og við hleðslu. Aðrar vélar með fljótandi liðskiptingu geta oltið auðveldlegar við ójafnt álag, en Avant lagar sig að undirlaginu.

Fyrirferðalítið og fjölhæft – Með fjölbreyttu úrvali aukabúnaðar getur sama Avant ámokstursvélin tekið að sér fjölbreytt úrval verkefna, allt frá slætti og garðklippingum yfir í jarðefnisflutninga og flutning á þungum byrðum. Þetta þýðir að þetta er kjörin alhliða lausn fyrir landareign með flóknu samspili ólíkra þarfa eins og Widooie.

FULLKOMIÐ FYRIR ÞUNG VERKEFNI | Nýja Avant 855i vélin er ætluð í þyngri verkefni, eins og að færa stór tré. „Áður þurftum við vörubíl til að flytja tré sem voru 15 til 16 metra há.“ Nú getum við gert það með 855i. Þetta sparar bæði tíma og peninga.“