Vorfjárfestingin: Sautjánda Avant vél fyrirtækins!
Það er vægt til orða tekið að segja að British Grass Care Services Ltd sé dyggur aðdáandi Avant vörumerkisins. Samkvæmt Adrian Smith, stofnanda fyrirtækisins, hefur fjölhæfni Avant aukið velgengni fyrirtækisins.
Undanfarin 30 ár hafa nokkrar mismunandi gerðir af Avant ámokstursvélum verið í notkun hjá Grass Care Services Ltd, sem sérhæfir sig í garðslætti, viðhaldi landareigna og alifuglaeldisstöðva og snyrtingu limgerða og trjáa.
„Avant tækin eru fullkomnir fyrir reksturinn. Tækin eru svo fjölhæf og auðvelt að aðlaga þau að mismunandi verkefnum, áreiðanleg og auðvelt að flytja þau á milli staða þannig að af hverju ætti manni ekki að líka við þau? segir stofnandi Adrian Smith, sem talar af langri reynslu.
„Ég keypti mína fyrstu Avant vél notaða og hún auðveldaði mér verkið til muna, sérstaklega þar sem erfitt var að athafna sig sökum þrengsla.“
Fyrirtækið hefur keypt 17 vélar í gegnum tíðina og er nú með fjórar í rekstri.
„Ámokstursvélarnar hafa verið ómissandi hluti af farsælli þróun rekstursins á þessu tímabili, ásamt þeim stuðningi sem ég hef notið frá söluaðilanum, Fentons of Bourne.“ Fólkið þar hefur verið frábært, alltaf til reiðu ef við höfum lent í einhverjum vandræðum, sem gerist ekki oft. „Ég tel að gæði vélanna velti á viðskiptavinastuðningnum og sá stuðningur sem við höfum orðið vitni að með Fentons hefur verið óviðjafnanlegur,“ segir Adrian.
Hárrétt í landslagsmótun
Grass Care Services fjárfesti nýlega í nýrri vél af gerðinni 640. Þökk sé 1,1 tonna lyftigetu hefur ámokstursvélin reynst fullkomin í verkið. Hún er útbúin öflugu viðbótarvökvakerfi sem getur knúið nánast allan Avant aukabúnað – sem telur yfir 200 gerðir.
Adrian nýtir sér hina ýmsu eiginleika Avant tækisins: Staðlaða, stækkanlega bóman býður upp á fyrirtaks drægi þegar bóman er að fullu útdreginn og mikla lyftigetu þegar hún er inndreginn. Einnig er vert að benda á framúrskarandi útsýni úr vélinni til allra átta og mikinn stöðugleika vegna þess að hún er með lægri þyngdarpunkt.
Vökvakerfi með fjöltengi til að tengja glussaslöngur aukabúnaðarins tryggir að hægt er að tengja og losa með einu handtaki og áreynslulaust. Hægt er að tengja við vélina meðan mótorinn er í gangi. Vélbúnaðurinn er lekalaus og ekki er hægt að tengja tengibúnað á rangan hátt.
Þökk sé vökvastöðugleikadrifinu er hægt að beita ámokstursvélinni gætilega á mjúka og viðkvæma fleti í beygjum. Kerfið býður einnig upp á betra veggrip á hálku og á ójöfnu undirlagi. Allir þessir eiginleikar hafa stuðal að því að Avant er sérstaklega ákjósanlegur valkostur fyrir Grass Care Services.
Traustar vélar leiddu til þess að hægt var að stækka rekstur fyrirtækisins
Í upphafi ferils síns sérhæfði Adrian Smith sig í viðhaldi á grasflötum og sláttur á alifuglabúum viðskiptavina sinna. Þegar stærra fyrirtæki keypti rekstur viðskiptavinarins jókst fjöldi verkefna hjá Adrian til muna. Þegar hann fjarlægði allan búnaðinn úr alifuglabúunum með því að nota litla dráttarvél með brettatindum að aftan, komst hann að því að þetta var ekki rétta vélin í verkið.
„Eftir að hafa séð Avant á vettvangi hugsaði ég að þetta gæti mögulega verið vélin fyrir mig.“ Það myndi auðvelda verkið til muna og gæti reynst frábært verkfæri til að athafna sig í þröngum rýmum innan í alífuglabúunum.
Eftir að Adrian festi kaup á Avant vélum notaði hann þær sífellt meira, ekki aðeins í alifuglabúum heldur einnig í jarðvinnuverkefnum og við að klippa tré og limgerði. Avant vélarnar hafa sannað sig sem fjölhæft verkfæri þökk sé fjölbreyttu úrvali af aukabúnaði eins og rótargripi, borholubúnaði, brettagafli, sláttuvélum, kústum og skóflum.
„Auk nýju Avant 640 vélarinnar erum við einnig með tvær aðrar 640 vélar og minni 528 vél á torfdekkjum sem við notum í görðum og á grasflötum til að við skiljum ekki eftir okkur hjólför eða grófir – og það hefur mælst vel fyrir hjá viðskiptavinunum.“


Lithuania